Messukaffi 2018
Hin árlega messa Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður í Áskirkju, sunnudaginn 29. apríl n.k. kl. 14:00 og kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Þar ætlum við að eiga notalega stund saman í kirkjunni og í safnaðarheimilinu á eftir messu.
Fjölmennum og tökum með okkur gesti. Vinsamlegast látið þetta fréttast meðal félagsmanna og ættingja.
Ræðumaður verður Ingvi Stígsson frá Horni í Hornvík.
Kaffið kostar 1.500 kr. á mann. Vinsamlegast greiðið með reiðufé eða hafið kvittun úr heimabanka
Reikningur: 0116-26- 003591, kennitala: 480182-0149.
- Hvar?
Áskirkja - Hvenær?
29. apríl - Klukkan?
14:00 til 16:00