Opinn fundur í Reykjavík um stjórnunar- og verndaráætlun Hornstrandafriðlands

Fimmtudaginn 14. júní klukkan 16:30 á Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík (Loftið) verðu haldinn verður opninn fundur vegna kynningar á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Hornstrandir. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málin betur eru velkomnir.

Nánari upplýsingar og drög að stjórnunar- og verndaráætlun.

Í nóvember voru haldnir opnir fundir á Ísafirði og fundur með landeigendum í Reykjavík um stjórnunar- og verndaráætlun. Samantekt frá samráðsfundum.

Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum er til 17. júlí nk. Hægt er að skila inn athugasemdum á heimasíðu stofnunarinnar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Þórdís Björt Sigþórsdóttir, thordis.sigthorsdottir@umhverfisstofnun.is eða Kristín Ósk Jónasdóttir, kristin.jonasdottir@umhverfisstofnun.is eða í síma 591-2000.