Loading...

Fljótavík

Að Látrum í Aðalvík

Frá tjaldstæðinu á Atlastöðum liggur leiðin upp með Atlastaðaós og hann vaðinn. Leiðin liggur svo að Tungu. Frá tjaldstæðinu á Glúmsstöðum liggur leiðin meðfram Fljótsvatni vestanverðu að Tungu.

Horft að Tungu. Tunguhorn, Tungudalur, og Nónfell.
Horft að Tungu. Tunguhorn, Tungudalur, og Nónfell.

Frá Tungu er haldið upp með Nónfelli upp á Tunguheiði og yfir hana.

Tunguheiði
Tunguheiði

Niðurleiðin liggur um Grafarhlíð að vegi sem lagður var fyrir herstöðina á Straumnesfjalli. Eftir veginum er haldið að Látrum.

Horft yfir Aðalvík
Horft yfir Aðalvík

Tjaldstæðið á Látrum er við neyðarskýlið.

 

Í Hlöðuvík

Frá tjaldsæðinu á Atlastöðum er haldið inn með Fljótsvatni að austanverðu. Frá Glúmsstöðum má setja stefnuna á Þorleifsskarð. 

Þar sem Reiðá fellur í Fljótsvatn er farið upp í Þorleifsdal.

Horft upp í Þorleifsdal
Horft upp í Þorleifsdal

Þegar upp í Þorleifsdal má finna stikur sem leiða ferðamanninn áfram upp í Þorleifsskarð.

Horft yfir Þorleifsdal
Horft yfir Þorleifsdal

Frá skarðinu tapast nokkur hæð en gönguleiðin heldur áfram undir Bergþóruskarð og Kjöl að Almenningaskarði sem haldið er yfir og niður í Kjaransvík.

Horft að Almenningaskarði
Horft að Almenningaskarði

Fara þarf yfir Kjalará og Kjaransvíkurá og fyrir Álfsfell. Þegar fyrir Álfsfellið er komið er stutt á tjaldstæðið við Hlöðuvíkurós.