Loading...

Stjórnunar- og verndaráætlun

Stjórnunar- og verndaráætlun

Unnið er að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið á Hornströndum. Gildistími hennar verður 10 ár og með henni fylgir aðgerðaráætlun til 5 ára. 

Stjórnunar- og verndaráætlun er í kynningarferli til 17. júlí. Nánari upplýsingar og drög að áætlun eru á vef Umhverfisstofnunar.

Haldnir verða tveir opnir fundir vegna kynningar á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Hornstrandir. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málin betur eru velkomnir.

  • Fimmtudaginn 14. júní klukkan 16:30 á Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík – Loftið.
  • Fimmtudaginn 21. júní klukkan 20:30 í Háskólasetrinu á Ísafirði.

Nánari upplýsingar og drög að stjórnunar- og verndaráætlun.

Í nóvember 2017 voru haldnir opnir fundir á Ísafirði og fundur með landeigendum í Reykjavík um stjórnunar- og verndaráætlun. Samantekt frá samráðsfundum.

Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum er til 17. júlí nk. Hægt er að skila inn athugasemdum á heimasíðu stofnunarinnar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Þórdís Björt Sigþórsdóttir, thordis.sigthorsdottir@umhverfisstofnun.is eða Kristín Ósk Jónasdóttir, kristin.jonasdottir@umhverfisstofnun.is eða í síma 591-2000.

Úr 82. gr. laga um náttúruvernd:

„Í stjórnunar- og verndaráætlun skal m.a. fjallað um landnýtingu, landvörslu, vöktun, uppbyggingu, fræðslu og miðlun upplýsinga, verndaraðgerðir og aðgengi ferðamanna, þar á meðal aðgengi fatlaðs fólks. Ef ekki hafa verið settar sérstakar reglur um umferð manna og dvöl á viðkomandi svæði í auglýsingu um friðlýsingu er heimilt að setja slíkar reglur í stjórnunar- og verndaráætlun svo og reglur um önnur atriði er greinir í IV. kafla [um almannarétt, útivist og umgengni.]“

Umhverfisstofnun er ábyrg fyrir gerð stjórnunar- og verndaráætlunin og hefur verið stofnaður samstarfshópur sem í eiga sæti fulltrúar Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps, Ísafjarðarbæjar og Umhverfisstofnunar.

Einnig er haft samstarf við Náttúrufræðistofnun Íslands og aðrar fagstofnanir. Aðrir hagsmunaaðilar eru m.a. ferðaþjónustan, útivistarfélög og átthagafélög.
 

Samstarfshópurinn

  • Jón Smári Jónsson formaður – Umhverfisstofnun
    Netfang: jon.jonsson@umhverfisstofnun.is - Sími 591 2000.
  • Kristín Ósk Jónasdóttir - Umhverfisstofnun
     
  • Erling Ásgeirsson – LSG
  • Ingvi Stígsson – LSG
    Netfang: ingvi.stigsson@gmail.com - Sími 862 0724
  • Matthildur G. Guðmundsdóttir – LSG
     
  • Gauti Geirsson – Ísafjarðarbæ
  • Gísli H. Halldórsson – Ísafjarðarbæ

Linda Guðmundsdóttir, sérfræðingur í friðlýsingarteymi Umhverfisstofnunar var samstarfshópnum innan handa.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðu á vef Umhverfisstofnunar.