Messa og kirkjukaffi í Áskirkju sunnudaginn 4. október

Hin árlega messa Átthagafélagsins verður í Áskirkju sunnudaginn 4. október n.k. kl. 13:00 og kaffi með okkar dásamlega kökuhlaðborði í safnaðarheimilinu á eftir. Þar ætlum við að eiga notalega stund saman í kirkjunni og í safnaðarheimilinu á eftir messu.

Prestur verður sr. Sigurður Jónsson.
Ræðumaður verður Sigríður Halldórsdóttir, ættuð frá Neðri-Miðvík

Fjölmennum og tökum með okkur gesti. Vinsamlegast látið þetta fréttast meðal félagsmanna og ættingja.

Kaffið kostar 2.000 kr. á mann, frítt fyrir börn yngri en 16 ára. Vinsamlegast greiðið með reiðufé eða hafið kvittun úr heimabanka 0116-26-003591, kt. 480182-0149.