Loading...

Skólinn á Sæbóli

Skólinn á Sæbóli

Skólinn á Sæbóli
Skólinn á Sæbóli
1 af 2

Skólahúsið á Sæbóli er í eigu og umsjá Átthagafélaga Sléttuhrepps. 

Skólahúsið var reist 1933 fyrir barnaskóla, en hann hafði verið starfræktur í leiguhúsnæði næstu tvö ár á undan.

Skóli að Látrum

Skóli var reistur á Látrum 1900 og var hann viðurkenndur sem alþýðuskóli 1904. Skólinn var reistur af sjálfboðaliðum eftir samskot. Í Þjóðviljanum 23. febrúar 1901 segir svo frá:

Buðust þá eigendur „Látra" til þess, að gefa skólanum, hvar sem í landareigninni væri, óræktaða landspildu, ca 500 [] f. að stærð, og jafnframt var þegar tekið að efna til samskota [...] var skólinn [...] reistur að Látrum síðastl. sumar. Hann er tvílyptur, 10¼ X  8½ al. að stærð, með  járnþaki, og kjallara undir, og var hann vígður 28. okt. síðastl. og voru börnin þá 12.

Skóli á Hesteyri

Heimilskennari var ráðinn til Hesteyrar 1889, Jón Friðfinnsson Kjærnested. Á Hesteyri var þinghús hreppsins tekið á leigu 1904 og reglugerð var sett fyrir Hesteyrarbarnaskóla 1907. 

Farskólar

Farskólar voru einnig starfræktir á heimilum í Höfn og Horni í Hornvík.

Á fundi skólanefndar 27. ágúst 1939 var ákveðið að það yrði einn kennari fyrir öll skólahverfin.