Stjórnunar- og verndaráætlun
Unnið er að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið á Hornströndum. Gildistími hennar verður 10 ár og með henni fylgir aðgerðaráætlun til 5 ára.
Stjórnunar- og verndaráætlun er í kynningarferli til 17. júlí. Nánari upplýsingar og drög að áætlun eru á vef Umhverfisstofnunar.
Haldnir verða tveir opnir fundir vegna kynningar á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Hornstrandir. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málin betur eru velkomnir.
- Fimmtudaginn 14. júní klukkan 16:30 á Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík – Loftið.
- Fimmtudaginn 21. júní klukkan 20:30 í Háskólasetrinu á Ísafirði.
Nánari upplýsingar og drög að stjórnunar- og verndaráætlun.
Í nóvember 2017 voru haldnir opnir fundir á Ísafirði og fundur með landeigendum í Reykjavík um stjórnunar- og verndaráætlun. Samantekt frá samráðsfundum.
Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum er til 17. júlí nk. Hægt er að skila inn athugasemdum á heimasíðu stofnunarinnar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Þórdís Björt Sigþórsdóttir, thordis.sigthorsdottir@umhverfisstofnun.is eða Kristín Ósk Jónasdóttir, kristin.jonasdottir@umhverfisstofnun.is eða í síma 591-2000.
Úr 82. gr. laga um náttúruvernd:
„Í stjórnunar- og verndaráætlun skal m.a. fjallað um landnýtingu, landvörslu, vöktun, uppbyggingu, fræðslu og miðlun upplýsinga, verndaraðgerðir og aðgengi ferðamanna, þar á meðal aðgengi fatlaðs fólks. Ef ekki hafa verið settar sérstakar reglur um umferð manna og dvöl á viðkomandi svæði í auglýsingu um friðlýsingu er heimilt að setja slíkar reglur í stjórnunar- og verndaráætlun svo og reglur um önnur atriði er greinir í IV. kafla [um almannarétt, útivist og umgengni.]“
Umhverfisstofnun er ábyrg fyrir gerð stjórnunar- og verndaráætlunin og hefur verið stofnaður samstarfshópur sem í eiga sæti fulltrúar Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps, Ísafjarðarbæjar og Umhverfisstofnunar.
Einnig er haft samstarf við Náttúrufræðistofnun Íslands og aðrar fagstofnanir. Aðrir hagsmunaaðilar eru m.a. ferðaþjónustan, útivistarfélög og átthagafélög.
Samstarfshópurinn
- Jón Smári Jónsson formaður – Umhverfisstofnun
Netfang: jon.jonsson@umhverfisstofnun.is - Sími 591 2000. - Kristín Ósk Jónasdóttir - Umhverfisstofnun
- Erling Ásgeirsson – LSG
- Ingvi Stígsson – LSG
Netfang: ingvi.stigsson@gmail.com - Sími 862 0724 - Matthildur G. Guðmundsdóttir – LSG
- Gauti Geirsson – Ísafjarðarbæ
- Gísli H. Halldórsson – Ísafjarðarbæ
Linda Guðmundsdóttir, sérfræðingur í friðlýsingarteymi Umhverfisstofnunar var samstarfshópnum innan handa.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðu á vef Umhverfisstofnunar.