Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík
Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldinn sunnudaginn 15. janúar 2012, klukkan 16:00 í Brautarholti 4A, 2. hæð.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf:
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.
- Kosning formanns.
- Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.
- Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.
- Ákvörðun tekin um árgjald félagsins.
- Önnur mál.
Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum:
- Jón Björnsson landvörður Hornstrandafriðlands.
- Sýndar verða myndir frá Aðalvík úr safni Benedikts Magnússonar.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Þorrablótið Átthagafélagsins verður haldið laugardaginn 28. janúar 2012 í Sal Þróttara í Laugardalnum, nánar auglýst síðar.