Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík

Kæru félagar í Átthagafélagi Sléttuhrepps
Aðalfundur félagsins verður haldinn sunndaginn 13. janúar 2013, klukkan 15:00 í sal Samiðnar, Borgartúni 30, 6. hæð.

Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.
  3. Kosning formanns.
  4. Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.
  5. Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.
  6. Ákvörðun tekin um árgjald félagsins.
  7. Önnur mál.

Guðríður Þorvarðardóttir frá Umhverfisráðuneytinu mun ræða við fundargesti að loknum aðalfundarstörfum.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar og myndasýningu.