Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2018
Aðalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 21. janúar 2018, klukkan 15:00 í sal Samiðnar, Borgartúni 30, 6 hæð.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf:
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.
- Kosning formanns.
- Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.
- Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.
- Ákvörðun tekin um árgjald félagsins.
- Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar.