Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2021
Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps verður haldinn kl. 15 sunnudaginn 30. maí í Konnakoti, sal Barðstrendingafélagsins, Hverfisgötu 105.
Bílastæðahús eru á Vitatorgi og Stjörnuporti, Laugavegi 94.
Dagskrá aðalfundar er:
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.
- Kosning formanns.
- Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.
- Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.
- Ákvöðun tekin um árgjald félagsins.
- Önnur mál.