Messa og kirkjukaffi í Áskirkju 5. maí 2013

Margt gott fólk kemur að undirbúningi messukaffis. Kaffinefnd 2011.
Margt gott fólk kemur að undirbúningi messukaffis. Kaffinefnd 2011.
1 af 2

Hin árlega messa Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður í Áskirkju sunnudaginn 5. maí n.k. kl. 14:00 og kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Þar ætlum við að eiga notalega stund saman í kirkjunni og í safnaðarheimilinu á eftir messu.


Kaffið kostar 1.500 kr. á mann. Vinsamlegast greiðið með reiðufé eða hafið kvittun úr heimabanka 0116-26-003591, kt. 480182-0149.


Fjölmennum og tökum með okkur gesti. Vinsamlegast látið þetta fréttast meðal félagsmanna og ættingja.


Ræðumaður verður Stefán Þór Sigurðsson frá Skriðu á Látrum í Aðalvík.