Messa og messukaffi Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík
Hin árlega messa Átthagafélagsins verður í Áskirkju sunnudaginn 11. maí n.k. kl. 14:00 og kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Þar ætlum við að eiga notalega stund saman í kirkjunni og í safnaðarheimilinu á eftir messu.
Kaffið kostar 1.500 kr. á mann. Vinsamlegast greiðið með reiðufé eða hafið kvittun úr heimabanka.
Reikningur: 0116-26-003591, kt. 480182-0149.
Fjölmennum og tökum með okkur gesti. Vinsamlegast látið þetta fréttast meðal félagsmanna og ættingja.
Ræðumaður verður Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur, ættaður frá Sæbóli í Aðalvík.