Messa og messukaffi í Áskirkju
Hin árlega messa Átthagafélagsins verður í Áskirkju á mæðradaginn, sunnudaginn 14. maí n.k. kl. 14:00 og kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Þar ætlum við að eiga notalega stund saman í kirkjunni og í safnaðarheimilinu á eftir messu.
Fjölmennum og tökum með okkur gesti.
Vinsamlegast látið þetta fréttast meðal félagsmanna og ættingja.
Ræðumaður verður Einar K. Guðfinnsson fyrrum forseti Alþingis.
Kaffið kostar 1.500 kr. á mann. Vinsamlegast greiðið með reiðufé eða hafið kvittun úr heimabanka 0116-26-003591, kt. 480182-0149.