Messuferð í Aðalvík 25. júní
Átthagafélög Sléttuhrepps í Reykjavík og á Ísafirði að standa fyrir messuferð að Stað í Aðalvík, laugardaginn 25. júní n.k. Undanfarin sumur hefur mikil vinna verið lögð í að lagfæra kirkjuna og er hún nú orðin hin glæsilegasta. Athöfnin hefst kl. 14:00.
Að messu lokinni verður kirkjugestum boðið í kaffi á prestssetrinu. Um kvöldið verður svo dansað og sungið í gamla skólanum og hefst fjörið um kl. 20.
Ferðir verða frá Ísafirði á laugardeginum, kl. 9:00 og til baka frá Sæbóli kl. 23:30.
Boðið verður upp á ferð frá Látrum á laugardagsmorgni og til baka um kvöldið, áður en báturinn fer til Ísafjarðar.
Einnig verður boðið upp á ferð til Ísafjarðar frá Sæbóli sunnudaginn 26. júní með báti sem fer frá Ísafirði kl. 18.
Verð:
Látrar - Sæból
- 4.000 kr. önnur leið.
Fargjald 25. og 26. júní:
- 13 ár og eldri: 8.910 önnur leið.
- 6-12 ára fá 50% afslátt.
- Yngri en 6 ára borga ekki.
Mikilvægt er að fólk bóki ferðir sem fyrst hjá Vesturferðum í síma 456-5111, sérstaklega þeir sem ætla sér að nýta ferðina á sunnudeginum.
Einnig er mikilvægt að þeir sem ætla sér að nýta flutning á milli Látra og Sæbóls láti vita hjá Vesturferðum.
Áætlunarferðir til og frá Aðalvík eru þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga frá Ísafirði. Nánari upplýsingar um áætlunarferðir veita Vesturferðir, sími 456-5111