Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2018

Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2018 

Hið árlega þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldið laugardaginn 17. febrúar í veislusalnum Turninum á 7. hæð í verslunarmiðstöðinni Firði, Fjarðargötu 13-15 í Hafnarfirði.
 
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til stjórnar í tölvupósti, netfang reykjavik@slettuhreppur.is, ekki mikið seinna en mánudaginn 12. febrúar.

Verðið er kr. 7.500 á manninn. Best er að borga miðann með því að leggja inn á reikning félagsins: 0116-26-003591, kt. 480182-0149 og setja Þorrablót 2018 í skýringu.
 

Dagskrá
Húsið opnað kl. 19:00
Borðahald hefst um kl. 20-20:15
Formaður býður gesti velkomna og setur þorrablótið
Hafsteinn Hafsteinsson veislustjóri tekur við

Matur frá Múlakaffi

Sungið úr söngheftum

Ræðumaður kvöldsins, Ólafur Helgi Kjartansson frá Aðalvík

Minni karla. Á eftir er sungið Táp og fjör og frískir menn
Minni kvenna. Á eftir er sungið Fósturlandsins Freyja

Skemmtiatriði
 
Happadrætti 
Sungið meira úr söngheftum
Plötusnúður spilar fyrir dansi fram eftir kvöldi
 

Baldur Hreinsson veislutjóri á þorrablóti 2017
Myndir Hermanns Snorrasonar frá þorrablóti 2017

Stjórn Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2018

  • Ingvi Stígsson, Horni Hornvík, formaður,  862 0724 
  • Jónína V. Kristinsdóttir, Sæbóli Aðalvík, gjaldkeri, 863 8887 
  • Unnar Hermannsson, Hesteyri, ritari
  • Bjargey Gígja Gísladóttir, Látrum Aðalvík,  822 2336
  • Íris Kristjánsdóttir, Látrum Aðalvík
  • Stefán Betúelsson, Görðum Aðalvík