Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík
Hið árlega þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldið laugardaginn 24. janúar í Restaurant Reykjavík, Vesturgötu 2.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til stjórnar í tölvupósti, netfang reykjavik@slettuhreppur.is
Verðið er kr. 6.700 kr. á manninn. Best er að borga miðann með því að leggja inn á reikning félagsins: 0116-26-003591, kt. 480182-0149 og setja Þorrablót 2015 í skýringu.
Dagskrá:
Húsið opnað kl. 19:00
Borðahald hefst c.a. kl. 20-20:15
Formaður býður gesti velkomna og setur þorrablótið
Veislustjóri, Alma María Rögnvaldsdóttir, tekur við
Matur
Sungið úr söngheftum
Ræðumaður kvöldsins, Unnur Berglind Friðriksdóttir frá Látrum
Minni karla. Á eftir er sungið Táp og fjör og frískir menn
Minni kvenna. Á eftir er sungið Fósturlandsins Freyja
Skemmtiatriði
Jón Ingi Stefánsson syngur
Happadrætti
Sungið meira úr söngheftum
Hljómsveit hússins spilar fyrir dansi fram eftir kvöldi