Fundargerð aðalfundar 7. nóvember 2010.
Aðalfundur Átthagafélag Sléttuhrepps á Ísafirði, 7. nóvember 2010, kl. 15:00
Formaður setti fundinn og gengið var til dagskrár.
- Fundargerð síðasta aðalfundar lesin upp og samþykkt.
- Inntaka nýrra félaga. Engar tillögur um nýja félaga í ár.
- Skýrsla formanns. Formaður gerði grein fyrir starfsemi ársins 2010.
- Skýrsla gjaldkera.
- Umræður um skýrslu formanns og gjaldkera.
- Magnús Reynir Guðmundsson kvað sér hljóðs og þakkaði stjórnum og félögum átthagafélaganna, bæði í Reykjavík og á Ísafirði fyrir þá miklu vinnu sem unnin hefur verið í tengslum við viðhald og viðgerðir á kirkjunni að Stað í Aðalvík. Fagnaði jafnframt auknu samstarfi milli félaganna í Reykjavík og á Ísafirði.
- Skýrsla formanns og skýrsla gjaldkera samþykktar.
- Kosning stjórnar - Stjórnin var endurkjörin sem hér segir.
- Andrea Sigrún Harðardóttir - formaður
- Jósef Vernharðsson - varaformaður
- Einar Hreinsson - ritari
- Jón Heimir Hreinsson - gjaldkeri
- Halldór Antonsson - meðstjórnandi
- Bergsteinn Gunnarsson - varamaður
- Jóna Benediktsdóttir - varamaður
- Kaffi
- Önnur mál.
- Einar Hreinsson sagði frá þeim verkum sem enn er eftir að vinna varðandi kirkjuna.
- Kynnt var skýrsla kirkjugarðsnefndar um verkáætlun varðandi viðhald kirkjugarðsins að Stað í Aðalvík.
- Rætt var um mikilvægi þess að koma á fót sambærilegri nefnd sem tæki að sér kirkjugarðinn á Hesteyri en samkvæmt markmiðum kirkjugarðaverkefnisins er ætlunin að huga að báðum görðunum. Tilkoma slíkrar nefndar verður að vera í samráði við landeigendur og hagsmunaaðila á Hesteyri, helst skipuð þeim aðilum, en áhersla lögð á að vinnan færi fram í nafni átthagafélaganna.
- Að endingu þakkaði formaður fundarmönnum komuna, þakkaði fyrir sína hönd og stjórnarmeðlima endurkjörið og sleit fundi.