Þrælavirki við Kollsá
Þrælavirki við Kollsá.
Kollur nam Kollsá. Kona hans var Hildur. Haugur hennar er á Seljafjalli,milli Staðardals og Höfðastrandardals. Kollur átti þræla marga. Heitir Þrælavirki innan við bæinn á Kollsá. Er það gamalt gerði um 20 faðmar á hvorn veg eftir mælingu sem gerð var 1936.
Munnmæli segja að Kollur hafi gefið þrælum sínum stykki þetta,og hafi þeir haft það til kornyrkju.