Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps 2022

Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður haldinn þriðjudaginn 31. maí kl. 17:30 í sal Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík, Flugvallarvegi 7, 102 Reykjavík. Salurinn er á 1. hæð og eru bílastæði fyrir framan hús.og vestan megin við húsið. Húsið er miðja vegu milli Valsheimilisins og Hótels Loftleiða.

Dagskrá er skv. lögum félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
  3. Lagabreytingar
  4. Stjórnarkjör.
  5. Kjör tveggja skoðunarmanna til 2ja ára í senn og tveggja til vara.
  6. Tekin ákvörðun um árgjald til félagsins.
  7. Önnur mál.