Minnisblað Ísafjarðarbæjar um breytingar á friðlandi Hornstranda
Á fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar 29. apríl 2014 var formanni umhverfisnefndar, Albertínu F. Elíasdóttur, og bæjarritara, Þórdísi Sigurðardóttur, falið að fara yfir ferðir vélknúinna ökutæja og flugfara á friðlandi Hornstranda. Málið var tilkomið vegna fyrirætlana Norðuflugs að hefja þyrluflug um friðlandið.
Tillögur í minnisblaðinu voru samþykktar á fundi bæjarráðs og í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar.
Nr. ákv. |
Núverandi ákvæði |
Tillaga Ísafjarðarbæjar |
1 |
Mannvirkjagerð öll, jarðrask og önnur breyting á landi, svo og undan landi allt að 60 föðmum (115m) frá stórstraumsfjörumáli, er háð leyfi [Umhverfisstofnunar]. |
Mannvirkjagerð öll, jarðrask og önnur breyting á landi, svo og undan landi allt að 1 sjómílu frá grunnlínu, er háð leyfi Umhverfisstofnunar. |
2 |
Umferð vélknúinna farartæka utan vega og merktra slóða er bönnuð, nema leyfi [Umhverfisstofnunar] komi til. |
Umferð vélknúinna farartækja, þar á meðal snjóbíla og vélsleða, utan vega og merktra slóða er bönnuð, allan ársins hring, nema leyfi Umhverfisstofnunar komi til. |
Flug neðan 3.000 feta hæðar yfir friðlandinu er óheimilt. Bannað er að lenda flugförum utan merkta lendingarstaða. |
Minnisblað til bæjarráðs Ísafjarðarbæjar frá Þórdísi Sigurðardóttur og Albertínu. F. Elíasdóttur