Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps 2024
Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður haldinn sunnudaginn 26. maí kl. 17 í sal Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík, Flugvallarvegi 7, 102 Reykjavík. Salurinn er á 1. hæð og eru bílastæði fyrir framan hús. Húsið er miðja vegu milli Valsheimilisins og Hótels Loftleiða.
Dagskrá er skv. lögum félagsins:
- Skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
- Lagabreytingar
- Stjórnarkjör.
- Kjör tveggja skoðunarmanna til 2ja ára í senn og tveggja til vara.
- Tekin ákvörðun um árgjald til félagsins.
- Önnur mál.
Á fundinum verður m.a. farið yfir drög að aðgerðaráætlun fyrir Hornstrandafriðland 2024-2028
Árleg verkefni:
- Ástandsmat unnið fyrir svæðið.
- Almennt viðhald á innviðum svæðisins, s.s. kömrum og gönguleiðum.
- Viðhald á vörðum.
- Leitast verði við að halda gönguleðum greiðfærum með viðeigandi aðgerðum.
2024
- Aðgengi að bryggju á Hesteyri bætt
- Brýr yfir Hesteyrará
- Fræðsluskilti við Höfn í Hornvík
- Fræðslu og varúðarskilti við Straumnesfjall upp af Látrum í Aðalvík og Stekkeyri í Hesteyrarfirði
- Lagfæring göngustígs við Tröllakamb milli Rekavík bak Hafnar og Hafnar í Hornvík
- Gönguleiðin milli Hesteyrar og Kjaransvíkur
- Aðgerðir til að hindra rof vegna ár og sjávar í kringum Læknishús og Búðina á Hesteyri
- Fluttningur á tjaldsvæði í Fljótavík skoðaður
2025
- Lagfæring gönguleiðar um Svaðagjá á Hornbjargi
- Endurnýjun kamra
- Brattir kaflar í gönguleið milli Atlaskarðs og Hlöðuvíkur
- Pallur fyrir framan salernisaðstöðu á Hesteyri
- Breikka göngustíg um Hesteyri
- Vegpóstar á Sæbóli í Aðalvík
- Tjaldsvæði í Fljótavík flutt
2026
- Endurnýjun kamra
- Brattir kaflar í gönguleið milli Hafnar í Hornvík og Veiðileysufjarðar lagaðir
- Vegpóstar endurnýjaðir á Hesteyri og svæðinu þar í kring
2027
- Endurnýja kamra
- Brattir kaflar í gönguleiðum
- Fræðsluskilti um Glúmsstaði í Fljótavík
2028
- Endurnýjun kamra