Stjórnunar- og verndaráætlun
Nú er hafin vinna við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið á Hornströndum. Gildistími hennar verður 10 ár og með henni fylgir aðgerðaráætlun til 5 ára. Stefnt er að því að stjórnunar- og verndaráætlun verði tilbúin í nóvember 2017.
Úr 82. gr. laga um náttúruvernd:
„Í stjórnunar- og verndaráætlun skal m.a. fjallað um landnýtingu, landvörslu, vöktun, uppbyggingu, fræðslu og miðlun upplýsinga, verndaraðgerðir og aðgengi ferðamanna, þar á meðal aðgengi fatlaðs fólks. Ef ekki hafa verið settar sérstakar reglur um umferð manna og dvöl á viðkomandi svæði í auglýsingu um friðlýsingu er heimilt að setja slíkar reglur í stjórnunar- og verndaráætlun svo og reglur um önnur atriði er greinir í IV. kafla [um almannarétt, útivist og umgengni.]“
Umhverfisstofnun er ábyrg fyrir gerð stjórnunar- og verndaráætlunin og hefur verið stofnaður samstarfshópur sem í eiga sæti fulltrúar Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps, Ísafjarðarbæjar og Umhverfisstofnunar.
Einnig er haft samstarf við Náttúrufræðistofnun Íslands og aðrar fagstofnanir. Aðrir hagsmunaaðilar eru m.a. ferðaþjónustan, útivistarfélög og átthagafélög.
Samstarfshópurinn
- Jón Smári Jónsson formaður – Umhverfisstofnun
- Erling Ásgeirsson – LSG
- Ingvi Stígsson – LSG
- Matthildur G. Guðmundsdóttir – LSG
- Gauti Geirsson – Ísafjarðarbæ
- Gísli H. Halldórsson – Ísafjarðarbæ
Linda Guðmundsdóttir, sérfræðingur í friðlýsingarteymi Umhverfisstofnunar, verður samstarfshópnum innan handa.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðu á vef Umhverfisstofnunar.