Átthagafélag Sléttuhrepps keppir við Súgfirðingarfélagið 7. mars

Keppendur kvöldsins
Keppendur kvöldsins
Fimmtudaginn 7. mars keppir Átthagafélag Sléttuhrepps við Súgfirðingafélagið í spurningakeppni átthagafélagana. Fyrir hönd Sléttuhreppinga keppa Ólafur Helgi Kjartansson, Harpa Henrýsdóttir og Hjalti Magnússon.


Keppnin er haldin í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14 (fyrir ofan Bónus).

Húsið opnar klukkan 19:30 og keppnirnar hefjast stundvíslega klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 500 krónur og hægt verður að kaupa kaffi og gos.

Keppnir þessa kvölds eru eftirfarandi í þessari röð:

Barðstrendingafélagið - Breiðfirðingafélagið 
Súgfirðingafélagið - Átthagafélag Sléttuhrepps 
Átthagafélag Héraðsmanna - Vestfirðingafélagið 
Siglfirðingafélagið - Norðfirðingafélagið 

 
Átta liða úrslitin fara svo fram 21. mars, undanúrslitin verða 11. apríl og úrslitin verða á síðasta vetrardag, 24. apríl. Eftir úrslitin verður keppninni lokið með heilmiklu húllumhæi og dansi fram á nótt.