Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2014

Hið árlega þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldið laugardaginn 1. febrúar 2014 í Restaurant Reykjavík, Vesturgötu 1.


Verðið er kr. 6.500 kr. á manninn. Best er að borga miðann með því að leggja inn á reikning félagsins: 0116-26-003591, kt. 480182-0149. 


Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til stjórnar í tölvupósti, reykjavik@slettuhreppur.is, fyrir fimmtudaginn 30. janúar.

Dagskrá:

Húsið opnað kl. 19:00
Borðahald hefst c.a. kl. 20-20:15

Formaður býður gesti velkomna og setur þorrablótið
Veislustjóri Þórólfur Jónsson tekur við
 
Matur
 
Sungið úr söngheftum
Ræðumaður kvöldsins Guðrún Sigurjónsdóttir ættuð úr Hlöðuvík
Minni karla, sungið á eftir Táp og fjör og frískir menn
Minni kvenna, sungið á eftir Fósturlandsins Freyja
Happadrætti 
Sungið meira úr söngheftum

Hljómsveit hússins spilar fyrir dansi fram á rauða nótt

Til sölu verður diskurinn Átthagar með heimildarmynd sem tekin var 1975 í messuferð í Staðarkirkju í Aðalvík. Diskurinn kostar 3.500 kr. Diskinn er hægt að kaupa með því að leggja inn á reikning félagsins: 0116-26-003591, kt. 480182-0149.

Stjórn Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík

  • Sigríður H. Sigurðardóttir, formaður,  869 7582 
  • Bjargey Gígja Gísladóttir  822 2336
  • Ingvi Stígsson 862 0724 
  • Jónína V. Kristinsdóttir 863 8887 
  • Smári Sveinsson 820 6463
  • Þorsteinn J. Vilhjálmsson